• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Gullspretturinn á Laugarvatni

Staður og tímasetning
Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn þann 12. júní og hefst það kl. 12 við gróðurhúsið niður við vatn.

Vegalengd og leið
Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn.

Skráning og þátttökugjald
Skráning á staðnum frá kl. 10 og þátttökugjald er kr. 1.000. Aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni innifalinn. Hægt er að skrá sig í hlaupið á heimasíðu Hlaup.is

Flokkaskipting og tímataka
Tímataka er í hlaupinu og keppt verður í karla og kvennaflokki.

Ath! Börn 14 ára og yngri verða að hlaupa í fylgd með fullorðnum.

Verðlaun
Verðlaun fyrir 3 fyrstu sætin í  karla- og kvennaflokki frá Hótel Eddu og frá Veitingastaðnum Lindinni Laugarvatni.

Þátttakendum boðið upp á hverabrauð Erlu og reyktan silung frá Útey að loknu hlaupi.

Gisting
Í tilefni Gullsprettsins býður Hótel Edda ML upp á sannkallað Gulltilboð á gistingu helgina 11- 13. júní.

Inspired by Iceland