• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Nú er malbikað alla leið frá Reykjavík til Ísafjarðar

Við erum sérlega glöð þessa dagana. Askan hefur sest og sumarið hefur verið undirbúið. Allir eru í startholunum. Og við erum sérstaklega ánægð yfir einu. Sumarið 2010 er fyrsta sumarið þar sem hægt er að keyra frá Reykjavík til Ísafjarðar á malbiki. Það væri svosem lygi ef við segðum að malbikið sé í draumum okkar og malarvegir í martröðunum, en okkur finnst þetta samt sérlega ánægjulegt.

AttachmentSize
Malbik vestur ísl.pdf312.73 KB
Inspired by Iceland