• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Fuglaskoðun

with white walls, green roof and a swimming pool in the back yard.
Hótel Edda Laugar í Sælingsdal

Á söguslóðum

Hótel Edda Laugarbakki

Á vígaslóð

Hótel Edda Egilsstaðir

Ormurinn ógurlegi

Egilsstaðir sitja í miðju Fljótsdalshéraði, grösugu og búsældarlegu, sem geymir margar náttúruperlur: Snæfell, fjalladrottningu Austurlands, Lagarfljót með orminum ógurlega, hinn rómantíska Hallormsstaðaskóg og Atlavík. Stutt er til Seyðisfjarðar sem er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf í einstakri byggð húsa frá 19. öld.

Hótel Edda Neskaupstaður

Við austustu nes

Á Neskaupstað er öflugt samfélag í skjóli hárra fjalla. Þangað var ekki farið öðruvísi en sjóleiðina þar til fyrir ríflega hálfri öld. Austasti tangi landsins, Gerpir, er skammt undan. Merk söfn eru í nágrenninu, meðal þeirra Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði.

Hótel Edda Nesjum

Konungur jöklanna

Allt byggðarlagið er meitlað af stærsta jökli Evrópu, Vatnajökli, og skriðjöklum úr honum. Náttúrufegurðin hér á enga sína líka og nægir þar að nefna Skaftafell, Jökulsárlón, Stafafellsfjöll og Skálafellsjökul sem örfá dæmi. Hótelið er við hringveginn, nokkra kílómetra utan við Höfn.

Inspired by Iceland