GolfHótel Edda Egilsstaðir Ormurinn ógurlegi Egilsstaðir sitja í miðju Fljótsdalshéraði, grösugu og búsældarlegu, sem geymir margar náttúruperlur: Snæfell, fjalladrottningu Austurlands, Lagarfljót með orminum ógurlega, hinn rómantíska Hallormsstaðaskóg og Atlavík. Stutt er til Seyðisfjarðar sem er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf í einstakri byggð húsa frá 19. öld. Hótel Edda Nesjum Konungur jöklanna Allt byggðarlagið er meitlað af stærsta jökli Evrópu, Vatnajökli, og skriðjöklum úr honum. Náttúrufegurðin hér á enga sína líka og nægir þar að nefna Skaftafell, Jökulsárlón, Stafafellsfjöll og Skálafellsjökul sem örfá dæmi. Hótelið er við hringveginn, nokkra kílómetra utan við Höfn. |
|