• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Gullfoss

Geothermal
Sex daga sæla SV

Suðvesturhornið er heppilegur kostur fyrir ferðalanga sem kjósa minni keyrslu, meira að sjá. Náttúran tekur vel á móti þér með öldugangi, fossúða, heilsulindum og árniði og borgarstemmning Reykjavíkur er aldrei langt undan.

Hotel Edda ÍKÍ Laugarvatn

Í rólegheitum
Hótelið er á sérlega fallegum og kyrrlátum stað við Laugarvatn. Tilvalinn staður til að láta fara verulega vel um sig í rólegu og heillandi umhverfi. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu, kjarrivaxið land og gróðursæl náttúra.

Hotel Edda ML Laugarvatn

Útivistarparadís
Óvíða eru betri möguleikar til fjölbreyttrar útiveru en á Laugarvatni sem er aðeins í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík. Geysir, Gullfoss og Þingvellir eru í næsta nágrenni, boðið er upp á siglingar og seglbretti á vatninu, stutt er í golfvöll og hægðarleikur að bregða sér á hestbak eða renna fyrir silung.