• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Heitir pottar

Hotel Edda Laugarbakki

Á vígaslóð

Hotel Edda Egilsstaðir

Ormurinn ógurlegi
Egilsstaðir sitja í miðju Fljótsdalshéraði, grösugu og búsældarlegu, sem geymir margar náttúruperlur: Snæfell, fjalladrottningu Austurlands, Lagarfljót með orminum ógurlega, hinn rómantíska Hallormsstaðaskóg og Atlavík. Stutt er til Seyðisfjarðar sem er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf í einstakri byggð húsa frá 19. öld.

Hotel Edda Neskaupstaður

Við austustu nes
Á Neskaupstað er öflugt samfélag í skjóli hárra fjalla. Þangað var ekki farið öðruvísi en sjóleiðina þar til fyrir ríflega hálfri öld. Austasti tangi landsins, Gerpir, er skammt undan. Merk söfn eru í nágrenninu, meðal þeirra Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði.

Hotel Edda Skógar

Við fossins nið
Náttúran umhverfis Skóga er stórbrotin: Skógafoss, Fimmvörðuháls, Eyjafjallajökull og Dyrhólaey. Jafnframt eru hér fallegar gönguleiðir um grónar hlíðar. Byggðasafnið á Skógum er löngu landsfrægt. Þar er fjöldi endurbyggðra húsa sem gefa Árbæjarsafni í Reykjavík lítið eftir.

Hotel Edda ÍKÍ Laugarvatn

Í rólegheitum
Hótelið er á sérlega fallegum og kyrrlátum stað við Laugarvatn. Tilvalinn staður til að láta fara verulega vel um sig í rólegu og heillandi umhverfi. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu, kjarrivaxið land og gróðursæl náttúra.