SjóminjasafnHótel Edda Egilsstaðir Ormurinn ógurlegi Egilsstaðir sitja í miðju Fljótsdalshéraði, grösugu og búsældarlegu, sem geymir margar náttúruperlur: Snæfell, fjalladrottningu Austurlands, Lagarfljót með orminum ógurlega, hinn rómantíska Hallormsstaðaskóg og Atlavík. Stutt er til Seyðisfjarðar sem er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf í einstakri byggð húsa frá 19. öld. Hótel Edda Neskaupstaður Við austustu nes Á Neskaupstað er öflugt samfélag í skjóli hárra fjalla. Þangað var ekki farið öðruvísi en sjóleiðina þar til fyrir ríflega hálfri öld. Austasti tangi landsins, Gerpir, er skammt undan. Merk söfn eru í nágrenninu, meðal þeirra Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði. |
|