• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Hotel Edda Ísafjordur

  • Lýsing

  • Umhverfi

Fjall og fjara
Landslag og gróðurfar Vestfjarða bera sérstakan svip. Nálægð fjalls og fjöru er óvíða meiri og jafnvel tungutak íbúanna hefur einstakan blæ. Náttúran hefur farið óblíðum höndum um Vestfjarðakjálkann og mótað hann sterkum dráttum. Í friðlandinu á Hornströndum er dýralíf óspillt og hvergi á landinu komast ferðalangar á tveimur jafnfljótum í nánari tengsl við náttúruna. Hótel Edda á Ísafirði er þægilega staðsett og er tilvalinn staður fyrir fólk sem vill ferðast um Vestfirði. Hótelið er með 20 notaleg nýuppgerð herbergi með baði og að auki 20 herbergi með handlaug. Ágætis tjaldstæði eru við hótelið.

  • Alls 40 herbergi: 20 með baði og 20 með handlaug
  • Svefnpokapláss
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ráðstefnu- og fundaaðstaða
  • Tjaldstæði
  • Opið 11. júní – 19. ágúst
  • Lýsing

  • Umhverfi

Við mælum með:

  • Skemmtilegum gönguferðum um Eyrina á Ísafirði
  • Kajaksiglingu á Pollinum
  • Fuglaskoðun í fallegu umhverfi - http://www.vesturferdir.is
  • Að fara í sund t.d. á Suðureyri, Bolungarvík eða Flateyri.
  • Leigja hjól og hjóla um bæinn - http://www.vesturferdir.is
  • Að skoða fuglalífið. Í Skutulsfirði eru fjölmargir staðir sem eru vinsælir fuglaskoðunarstaðir
  • Sigling í Vigur. Íbúar í náttúruperlunni Vigur eru rómaðir fyrir einstaka gestrisni sína og gómsætar heimabakaðar kökur. Ríkt fuglalíf er í og við eyjuna og má meðal annars sjá æður og teistu auk þess sem þúsundir lunda hreiðra um sig í holum.
  • Heimsókn á Hesteyri. Skemmtileg skoðunar og kaffiferð á Hesteyri þar sem hægt er að fara í stutta göngu og skoða plöntur og fjölbreytta nátturu. Gamla Læknishúsið er kaffihús á sumrin þar sem ferðalöngum er boðið upp á kaffi og með því.
  • Golfi í Tungudal. Golfvöllurinn í Tungudal er 9 holu, staðsettur í fögru umhverfi Tungudalsins.
    Að skoða sjóminjasafnið Neðstakaupstað og safnið á Gamla sjúkrahúsinu
  • Náttúrugripasafninu í Bolungarvík
  • Fjöruferð-fjaran heillar alla, börn jafnt sem fullorðna
  • Naustahvilft er skemmtileg ganga en þaðan er frábært útsýni yfir Ísafjörð
  • Fossinn Dynjandi og Hrafnseyri við Arnarfjörð er tilvaldir áningarstaðir
  • Veiði – silungsveiði eða sjóstangaveiði
  • Raggagarður í Súðavík er staður fyrir alla fjölskylduna
  • Fjöldi skemmtilegra gönguleiða. Við mælum sérstaklega með 7 nýútkomnum göngukortum um Vestfirði sem fást á Hótel Eddu Ísafirði eða á upplýsingamiðstöðvum Vestfjörðum - www.strandir.is/gongukort

Hafðu samband, við veitum nánari upplýsingar eða aðstoðum þig við að undirbúa ævintýralega heimsókn.

Skrifa ummæli

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img>
  • Lines and paragraphs break automatically.

More information about formatting options

CAPTCHA
This question is for testing whether you are a human visitor and to prevent automated spam submissions.
Image CAPTCHA
Enter the characters shown in the image.