Hótel Edda ÍKÍ Laugarvatn
Í rólegheitum Hótelið er á sérlega fallegum og kyrrlátum stað við Laugarvatn. Tilvalinn staður til að láta fara verulega vel um sig í rólegu og heillandi umhverfi. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu, kjarrivaxið land og gróðursæl náttúra.
Hafðu samband, við veitum nánari upplýsingar eða aðstoðum þig við að undirbúa ævintýralega heimsókn.
Laugarvatn og nágrenniSkólasetrið að Laugarvatni er í 73 km fjarlægð frá Reykjavík ef ekið er um Þingvelli en 92 km ef leiðin liggur um Hellisheiði. Að Laugarvatni eru margir skólar og má t.d. nefna barna- og grunnskóla, íþróttakennaraskóla sem stofnaður var 1932 og Menntaskóla frá 1953. Heimavistir skólanna eru notaðar sem sumarhótel. Mikill jarðhiti er á Laugarvatni og hitinn er notaður til upphitunar á húsnæði, til gufubaða og ylræktar. Fornar sagnir segja að sumir höfðingjar á Þingvöllum hafi ekki viljað skírast í köldu vatni Þingvalla árið 1000 heldur kosið heitar laugar að Laugarvatni. Ein þessara heitu lauga er Vígðalaug niður við vatnið. Munnmæli herma að þegar lík Jóns Arasonar og sona hans hafi verið grafin upp í Skálholti hafi þau verið flutt til Laugarvatns og þvegin við Vígðulaug áður en þau voru flutt til Hóla til greftrunar. Hjá lauginni eru nokkrir steinar sem kallaðir eru Líkasteinar. Á þeim stóðu líkbörur þeirra feðga. Laugarvatn sem er rúmlega 2 km2 er grunnt og gróðursælt. Heitar laugar eru víða í vatninu. Gnægð er þar af góðum silungi (bleikju) sem hótelin nýta sér á veitingastöðum sínum. Áhugaverðir staðir í nágrenni LaugarvatnsÞingvellir Skálholt í Biskupstungum er í 17 km fjarlægð frá Laugarvatni. Fyrst er ekið eftir vegi #37, þá #35 og inn á leið #31. Skálholt er fornt biskupssetur og þar var vagga kristni og lærdóms í rúmlega 700 ár. Skálholt var í raun höfuðstaður landsins. Lærdómssetur var stofnað árið 1056 af Ísleifi Gissurarsyni en hann var biskup frá 1056 til 1080. Setrið var kallað Latínuskólinn. Í upphafi fengu prestar þar menntun sína og síðar nemar í háskólanámi. Skólinn var fluttur til Reykjavíkur 1796 og varð seinna Menntaskólinn í Reykjavík sem starfar enn. Horsteinn núverandi kirkju var lagður 1956 til að minnast þess að 900 ár voru liðinn frá því að Ísleifur Gissurarson tók vígslu. Forgöngumenn að því verki voru Sigurbjörn Einarsson biskup (1911-2008) og norski presturinn Odd Hope. Kirkjusmíðinni lauk árið 1963 og var kirkjan vígð sama ár. Kirkjunni bárust margar verðmætar gjafir frá öllum Norðurlöndunum. Kaupmaðurinn Ludvig Storr (1897-1979) í Reykjavik og bróðir hans Edwin í Danmörku stóðu fyrir söfnun þar. Danir gáfu orgelið, öll ljós, stóla og eina kirkjuklukku. Þeir lögðu einnig fram talsvert fé til að setja upp altaristöfluna eftir listakonuna Nínu Tryggvadóttur (1913-1968). Danir kostuðu einnig gerð og uppsetningu glugganna eftir listakonuna Gerði Helgadóttur (1928-1975). Norðmenn gáfu allt timbur til verksins, hurðir, gólfflísar, þakhellur og eina kirkjuklukku. Tvær kirkjuklukkur komu frá Svíþjóð og ein frá Finnlandi. Af átta klukkum í turninum eru því fimm frá Norðurlöndunum. Skírnarfonturinn er frá Færeyjum, höggvinn úr færeysku grjóti af þarlendum listamanni. Klukknaspilið er persónuleg gjöf frá Ludvig Storr. Mjög verðmætt bókasafn er í eldtraustri geymslu í turni kirkjunnar. Þar eru að finna mörg öndvegisverk íslenskra bókmennta. Má þar t.d. nefna eintak af Guðbrandsbiblíu, fyrstu heildarútgáfu Biblíunnar á íslensku, er Guðbrandur áritaði til dóttur sinnar. Skálholt á sér langa og viðburðarríka sögu sem áhugavert er að kynnast. Geysir Gullfoss Annað áhugavertFlúðasigling frá Drumoddsstöðum er afar vinsælt tómstundagaman. Drumboddsstaðir eru í um 30 km fjarlægð frá Laugarvatni (sjá kort). Siglt er á ánni Hvítá. Siglingarleiðin er um 7 km í gengum myndræn gljúfur og fjölda flúða. Hinar einstöku bergmyndanir við Brúarhlöð eru vinsælt myndefni. Margir þátttakendur skemmta sér einnig við að stökkva ofan af klettunum í fljótið. Golfvöllurinn Áhugaverðir staðir utan alfaraleiðaNorðaustur horn Þingvallavatns (Vellankatla) er ákaflega fallegur staður í skemmtilegu landslagi. Hér er annað mesta innstreymi lindarvatns inn í Þingvallavatn. Tilvalin „picnic“ staður með frábæru útsýni yfir vatnið. Þjóðsögur á SuðurlandiBergþór í Bláfelli Þetta er sagan af Bergþóri sem var af tröllaættum og bjó í Bláfelli. Bláfell blasir við þegar ekið er að Geysi og Gullfossi. Bergþór var hugfanginn af bjölluhljómi kirkjunnar í Haukadal og af niði lækjarins. Hann samdi við bóndann um greftrun utan kirkjugarðsveggsins svo hann gæti hlustað á bjölluranar og lækinn um alla eilífð. Hóllinn rétt utan við garðinn er leiði Bergþórs. Hringurinn á kirkjuhurðinni er af stafnum hans. Jóra í Jórukleif Einu sinni var skapstór stúlka er Jórunn hét og bjó í Sandvík nálægt Selfossi. Sagan segir m.a. frá hestaati er hestur föður hennar tapaði. Jóra varð vitstola af reiði og reif lærið af sigurvegaranum og stikaði yfir Ölfusá. Hún varð hið versta flagð sem settist að í helli í Henglinum við suðurenda Þingvallavatns. Þar sat hún fyrir ferðamönnum og át þá. Dansinn í Hruna Fyrir langa löngu stóð kirkjan í Hruna á hæð ofan við bæinn. Sagan segir frá presti nokkrum sem hallur var að skemmtan og gleðskap á jólanótt í stað þess að syngja messu, móður sinni Unu til mikillar armæðu. Jólanótt eina hafði djöfullinn betur og kirkjan ásamt öllum söfnuðinum sökk í yður jarðar. Í dag stendur kirkjan neðan við hólinn. Enn má sjá rústir gömlu kirkjunnar uppi á hólnum. Sæmundur fróði og djöfullinn Stutt saga um Sæmund hinn fróða sem lærði í Svartaskóla. Skólameistarinn þar var sjálfur djöfullinn. Sagan segir frá samskiptum Sæmundar og kölska í Svartaskóla og áfram eftir að Sæmundur sneri til baka til Íslands. Kölski breytti sér í sel og flutti Sæmund til Íslands til að öðlast sál hans en Sæmundur hafði betur. Sæmundur las Saltarann á leiðinni og er þeir komu að ströndinni sló Sæmundur selinn í hausinn með guðsorðinu. Merki Háskóla Íslands er Sæmundur á selnum. Við mælum með Þjóðsögum Einars Ól. Sveinssonar eða Jóns Árnasonar. KvöldgöngurMeðan á dvölinni að Laugarvatni stendur mælum við með göngu að Vígðulaug. Síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, Jón Arason og synir hans tveir (Ari og Björn) voru hálshöggnir að Skálholti án dóms og laga þann 7. nóvember 1550. Líkin voru urðuð við kirkjuvegginn. Bændur að norðan komu suður, grófu líkin upp og fluttu að Laugarvatni. Þar voru líkbörurnar settar niður á Líkasteina við laugina og þvegin áður en haldið var áfram til Hóla þar sem þeir feðgar fengu virðulega útför. Á þúsund ára afmæli kristni á Íslandi árið 2000 voru þrjú börn skírð við Vígðulaug. Fjallganga
Skógurinn
|
Mikilvægar upplýsingarHótel Edda – ÍKÍ Laugavatn Gestir Hótel Eddu ÍKÍ fá 10% afslátt að nýja baðstaðnum Laugarvatn FONTANA. TilboðFjarlægðir
|
|||||