• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Njóttu þæginda

Möguleikar til útiveru og afþreyingar í næsta nágrenni Edduhótelanna eru nánast óendanlegir og getur öll fjölskyldan fundið eitthvað við sitt hæfi. Edduhótelin eru frábærlega staðsett í fögru umhverfi og heillandi náttúru.

Edduhótelin eru elsta hótelkeðja á Íslandi. Við höfum margra áratuga reynslu af því að veita þreyttum ferðalöngum notalegt næturskjól og afslappandi umhverfi eftir langan ferðadag.

Icelandair Hotels eiga og reka Eddu hótelin sem hafa það markmið að veita frábæra þjónustu á hagstæðu verði.

Hotel Edda Skogar
Suðurland
Náttúran umhverfis Hótel Eddu Skógum er stórbrotin: Skógafoss, Fimmvörðuháls, Eyjafjallajökull og Dyrhólaey. Jafnframt eru þar fallegar gönguleiðir um grónar hlíðar.
Hótel Edda ML Laugarvatni
Suðurland
Hótel Edda ML Laugarvatn er á fallegum stað og er frábær bækistöð fyrir þá sem vilja heimsækja Geysi, Gullfoss og þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Hotel Edda Vik
Suðurland
Hótel Edda Vík kúrir undir sandsteinsbrekkunum í Vík. Frábært útsýni til sjávar og Mýrdalsjökuls.
Suðurland
Hótel Edda ÍKÍ Laugarvatni er á sérlega fallegum og kyrrlátum stað við vatnið. Tilvalinn staður til að láta fara verulega vel um sig í rólegu og heillandi umhverfi.
Austurland
Allt umhverfi Hótel Eddu Nesjum er meitlað af stærsta jökli Evrópu, Vatnajökli. Stutt er að fara í Skaftafell og Jökulsárlón.
Austurland
Hótel Edda Neskaupstað er í grennd við austasta tanga landsins. Merk söfn eru í nágrenninu, meðal þeirra Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði.
Austurland
Hótel Edda Egilsstöðum er í miðju Fljótsdalshéraði, grösugu og búsældarlegu.
Norðurland
Hótel Edda Stórutjörnum er í alfaraleið og góð bækistöð, enda er afar margt að sjá og skoða í Þingeyjarsýslum.
Norðurland
Hótel Edda Akureyri er í höfuðstað Norðurlands þar sem í boði er flest það sem hugurinn girnist, sögufræg hús, söfn, lystigarður, golfvöllur, kaffihús, verslanir og þjónusta.
Norðurland
Hótel Edda Laugarbakka er miðja vegu milli Reykjavík og Akureyrar með útsýni yfir Miðfjarðará, eina frægustu laxveiðiá landsins.
Outside picture of Hotel Edda Ísafjordur taken from the sea
Vestfirðir
Hótel Edda Ísafirði er fullkomin bækistöð fyrir þá sem eru í ævintýraleit. Ómissandi er að skoða friðlandið á Hornströndum, fara í siglingu um Jökulfirði og í fuglaskoðun í Vigur.
with white walls, green roof and a swimming pool in the back yard.
Vesturland
Hótel Edda Laugum er á frægum söguslóðum þar sem fortíðin leynist í hverju spori, hverju örnefni og bæjarnafni.
Inspired by Iceland