Hotel Edda Vík
Sigurbogi náttúrunnar
Notalegt hótel sem kúrir undir sandsteinsbrekkunum í Vík. Hrikalegar andstæður í náttúrunni, hafið sverfur stórgert fjörugrjótið jafnt og þétt með djúpum undirtónum við Dyrhólaey og Reynisdranga meðan Mýrdalsjökull drottnar þögull og virðulegur yfir byggðinni. Stórkostlegt fuglalíf árið um kring og Lundinn er aðeins í seilingarfjarlægð á varpstöðvum sínum í Reynisfjalli.
- Alls 31 herbergi, öll herbergi eru Eddu PLÚS, með baði, sjónvarpi og síma
- Þráðlaust internet um allt hótelið og aðgangur að tölvu í móttöku
- Kvöldverður er á veitingastaðnum Ströndinni sem er með 30 rétta ala-cart matseðil og býður upp á glæsilegasta útsýni landsins yfir Reynisdranga og fjöruna sem kosin hefur verið ein af fallegustu ströndum heims.
- Opið 25. maí – 10. september
- Opið Sumarhúsin 10. maí – 20. september
- Fjórhjólaferðir
- Hundasleðaferðir
- Níu holu golfvöllur
- Gönguleiðir um fjöll og fjörur
- Ísklifur í Höfðabrekkujökli
- Vélsleðaferðir
- Fuglaskoðun
- Hestaferðir
- Sundlaug í Vík
- Minjasafn að Skógum
- Menningasafn í Vík
- Silungsveiði
- Smelltu hér til að opna PDF skjal með ýmsum hagnýtum upplýsingum frá Vík
Hafðu samband, við veitum nánari upplýsingar eða aðstoðum þig við að undirbúa ævintýralega heimsókn.
|
Skrifa ummæli