Um okkur
Edduhótelin hafa fyrir löngu unnið sér sess sem hagkvæmur og þægilegur gistimáti á ferðalögum um Ísland. Nú eru
starfrækt tólf Edduhótel vítt og breitt um landið og er sérhvert þeirra í námunda við einhverjar af helstu náttúruperlum
okkar. Möguleikar og aðstaða til útiveru og afþreyingar í næsta nágrenni hótelanna hafa vaxið hratt á síðustu árum og
getur öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við sitt hæfi þegar dvalið er á Edduhóteli. Hótelin eru vel staðsett allan hringinn, flest
í framhaldsskólum sem ekki eru í notkun á sumrin. Herbergjafjöldinn á Eddu Hótelunum er breytilegur eða frá 28 - 204 herbergi sem
ræðst af staðsetningu.

Myndir og myndbönd
Edduhótelin eru öll einstök á sinn hátt en öll eru þau umvafin fallegri náttúru og áhugaverðu umhverfi. Kíktu í
myndaalbúmin okkar til að skoða öll 12 Eddu hótelin og hvert þig langar til að fara í sumar, hver veit - þú gætir endað með
að fara - og brosa - hringinn með okkur!
