Fimm sæludagar
Fimm daga pakkaferð á eigin vegum
Dagur 2: Suðurland HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Bláa lónið – Stokkseyri – Seljalandsfoss og Skógafoss Dagurinn hefst á góðum morgunverði og svo er ráð að renna í Bláa lónið til að endurnýja kynnin við náttúruna og hressandi útiloft. Að lokinni slökun og skemmtun í lóninu má aka Krýsuvíkurleiðina til Eyrarbakka og Stokkseyrar og njóta strandlífsins, koma við á Selfossi og grandskoða fegurð fossa og fjalla á leiðinni að Skógum. Dagur 3: Skógar – Laugarvatn HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Gullfoss – Geysir – Laugarvatn Þá er komið að perlunum; gott að vera í regnstakk við Gullfoss og ekki fara of nálægt Strokki og Geysi. Hér er hægt að vera í hlutverki upplýsta túristans, engin þörf á að slást í hjörð með leiðsögumanni en spennandi um leið að vera gestur í eigin landi. Laugarvatn er í þægilegri akstursfjarlægð frá Geysi og rúmið verður án efa kærkomið að kvöldi. Dagur 4: Þingvellir HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Þingvellir – Hveragerði Gullna hringnum lokað með heimsókn á Þingvelli. Í þjóðgarðinum er að finna mikilvæga staði á sögulegan, jarðfræðilegan og líffræðilegan mælikvarða. Þú gengur eftir Almannagjá í fótspor forfeðranna (og fjölda erlendra þjóðhöfðingja), tekur myndir við Öxará, speglar þig í Silfru og kastar mynt í Flosagjá, ef þú tímir. Hægt er að ganga á Arnarfell, skokka í kringum Þingvallavatn eða gleyma sér í upplýsingamiðstöðinni. Að kvöldi er rennt inn í Reykjavík, eftir viðkomu í Hveragerði. Dagur 5: Heimferð Þú vaknar eftir góða hvíld á Hilton, ferð í slopp og gáir til veðurs. Góða heimkomu. Verð á mann sumarið 2012
Innifalið í verði: Eingöngu gisting. Önnur spennandi tilboð |
Önnur tilboð
|