Frítt í sund á Neskaupstað
Allir þeir sem gista á Hótel Eddu Neskaupstað í sumar fá frítt í sundlaugina í Neskaupstað. Sundlaugin er opin alla virka daga frá klukkan 6:00 til 20:00. Um helgar er laugin opin frá 10:00 til 18:00. Þeir gestir Hótel Eddu Neskaupstað sem vilja nýta sér þetta tilboð skulu leita upplýsinga í móttöku hótelsins.
Sundlaugin í Neskaupstað er nýuppgerð með vaðlaug fyrir börn, ásamt tveimur stórum rennibrautum. Sauna er á staðnum ásamt rómuðu útsýni yfir fjörðinn þar sem sundlaugin situr ofarlega í bænum.
Rétt fyrir utan sundlaugina er skemmtilegur garður sem hægt er að sleikja sólina eða borða Eddubitann sinn.
Hægt er að hafa samband við Hótel Eddu Neskaupstað í síma 444 4860 eða með tölvupósti á neskaupstadur@hoteledda.is
|