Níu daga Íslandskönnun Níu daga Íslandskönnun Dagur 1: Reykjavík Sólarhringur á hóteli í höfuðborginni er góð leið til að vinda ofan af sér, gleyma hversdeginum, slaka á og koma sér í ferðagír. Athugaðu hvað er á seyði í Reykjavík á vefsíðunni visitreykjavik.is Dagur 2: Reykjavík – Vík HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Þingvellir – Geysir – Gullfoss – Skógafoss Á Suðurlandi eru margar af helstu náttúruperlum Íslands. Við mælum með því að aka á Þingvöll og svo um Geysissvæðið og að Gullfossi. Dagur 3: Vatnajökull HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Skaftafell – Vatnajökull – Jökulsárlón Í dag keyrirðu með suðurstrandlengjunni í austurátt. Þér gefst tækifæri á að skoða lunda og safna skeljum og fallegum steinum á svartri sandströndinni. Einnig er möguleiki á að berja augum eða jafnvel fara á einn af stærstu jöklum Evrópu, sjálfan Vatnajökul. Svo er alger skylda að koma við á Jökulsárlóni þar sem James Bond stóð í ströngu í myndinni Die Another Day. Dagur 4: Austfirðir HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Steinasafnið á Stöðvarfirði – Papey Kannaðu stórbrotna Austfirðina. Landslagið er stórfenglegt, firðirnir langir og þröngir, fjöllin brött og oddhvöss og mörg náttúruundur að sjá. Við mælum með heimsókn í Steinasafn Petru á Stöðvarfirði. Dagur 5: Mývatn HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Möðrudalur – Mývatn – Dimmuborgir – náttúruböðin Mývatni Það er nauðsynlegt að hafa sinfóníska tónlist í tækinu þegar ekið er yfir Möðrudalsöræfi. Allir ferðalangar ættu að skoða sig um við Mývatn og nágrenni, koma við í Dimmuborgum og skoða litríkan brennisteininn í náttúrunni við Námaskarð og eldfjallið Kröflu. Dagur 6: Skagafjörður HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Byggðasafnið í Glaumbæ – Vatnsdalshólar Þegar ekið er frá Akureyri til Lauga í Sælingsdal er tilvalið að aka Hrútafjörð og fara fjallabaksleið yfir Laxárdalsheiði. 7. dagur: Skagafjörður Hápunktar: Glaumbær - Óteljandi myndir Vatnsdalshóla Akstur frá Akureyri til Lauga í Sælingsdal, mælum við með því að þú ferðast í átt að Hrútafirði og farir yfir Laxárdalsheiði. Dagur 8: Snæfellsnes HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Stykkishólmur – Snæfellsjökull – Dritvík – Arnarstapi Nú þegar síga fer á seinni hluta ferðalagsins geturðu valið þér leið aftur til Reykjavíkur. Við mælum þó með akstri um hið undurfagra Snæfellsnes, þar sem skynja má víðfræga orku Snæfellsjökul, en ef þér liggur á má fara flýtileiðina og slappa af á Hilton Reykjavík Nordica allt kvöldið. Dagur 9: Heim Verð á mann sumar 2010 Tveggja manna herbergi: 72.400 kr. Innifalið í verði: Eingöngu gisting. Nánari upplýsingar og bókanir í síma 444 4000, með tölvupósti á netfangið edda@hoteledda.is eða með því að smella á tengilinn hér að ofan. Related offers |
Other Special Offers
|