• Íslenska
  • English
  • Deutsch
  • Español
  • Hotel EDDA

Sjö daga rjómaferð

Við sjáum um gistinguna, þú sérð um ævintýrið. Á slóðum James Bond, Gunnars á Hlíðarenda, Hannesar landpósts og Ingólfs Arnarsonar ætti engum að leiðast og Suðurlandið er hverrar mínútu og hverrar stafrænnar ljósmyndar virði.
Dagur 1: Reykjavík
Þú kemur þér þægilega fyrir á Hótel Loftleiðum og breiðir úr Íslandskortinu. Þegar vikan framundan hefur verið skipulögð í stórum dráttum er tilvalið að taka sér fyrir hendur lítinn leiðangur um Reykjavík. Upplýsingar um helstu list- og menningarviðburði á hverjum tíma er að finna á reykjavik.is.
Gist á Hótel Loftleiðum
Dagur 2: Reykjavík – Nesjavellir
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Bláa lónið, Nesjavellir
Heilsusamleg slökun í Bláa lóninu. Því næst er ráð að aka til Nesjavalla þar sem orkan úr iðrum jarðar skapar stórbrotna upplifun fyrir öll skilningarvit.
Gist á Hótel Hengli
Dagur 3:Nesjavellir – Flúðir
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Þingvellir – Geysir – Gullfoss
Í þjóðgarðinum á Þingvöllum er að finna sögulega, jarðfræðilega og líffræðilega mikilvæga staði sem gaman er að skoða. Þú gengur eftir Almannagjá, tekur myndir við Öxará, speglar þig í Silfru og kastar mynt í Flosagjá – ef þú tímir. Næstir eru Gullfoss og Geysir, ef þú vilt klára Gullhringinn góða.
Gist á Hótel Flúðum
Dagur 4: Flúðir – Vík
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Seljalandsfoss – Skógafoss – Dyrhólaey
Frá Flúðum er ekið að Vík í Mýrdal. Á leðinni mælum við með áningu við tvo tignarlega fossa, Seljalandsfoss og Skógafoss, að ógleymdu Byggðasafninu að Skógum. Hægt er að bregða sér á snjósleða á Sólheimajökli (sjá skilti við veginn) og gleymið ekki að hafa augun opin fyrir Dyrhólaey, rétt áður en komið er að Vík. Athugið þó að umgengni um Dyrhólaey er bönnuð á varptíma fugla, frá miðjum maí til 23. júní.
Gist á Hótel Eddu Vík
Dagur 5: Vík
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Kirkjubæjarklaustur – Skaftafell
Í dag er annað hvort hægt að slaka á í Vík eða heimsækja stærsta jökul Evrópu, Vatnajökul. Jökullinn er í hinum stórbrotna Skaftafellsþjóðgarði og hans má njóta hvernig sem viðrar. Í 60 km fjarlægð er svo Jökulsárlón þar sem sigla má milli ísjaka og rifja upp atriði úr Bond-myndinni Die Another Day.
Gist á Hótel Eddu Vík
Dagur 6: Vík – Reykjavík
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Seljavellir – Selfoss – Hveragerði
Frá Vík liggur leiðin aftur til Reykjavíkur, t.a.m. með viðkomu á Seljavöllum og í tómatalýðveldinu Hveragerði.
Gist á Hilton Reykjavík Nordica
Dagur 7: Reykjavík
Verð á mann sumarið 2010
Tveggja manna herbergi: 61.750 kr.
Einstaklingsherbergi: 102.100 kr.
Innifalið í verði:
Eingöngu gisting.

Nánari upplýsingar og bókanir í síma 444 4000, með tölvupósti á netfangið edda@hoteledda.is eða með því að smella á tengilinn hér að ofan.

Hotel: 

Related offers