Á Hótel Eddu Ísafirði eru alls 33 herbergi með sér baði. Einnig er boðið upp á svefnpokapláss.
Gestrisni af gamla skólanum síðan 1961
Frá heimavist til hótels
Saga Edduhótelanna er nánast samofin sögu ferðaþjónustu á Íslandi. Með almennum flugsamgöngum til landsins og bættum efnahag jókst þörfin á þjónustu við ferðafólk hringinn í kring um landið. Við Íslendingar erum vön að bjarga okkur og nýta þá möguleika sem standa til boða. Í þeim anda fæddist sú hugmynd að nýta heimavistarskólana á landsbyggðinni sem hótel yfir sumarmánuðina þegar þeir stóðu auðir. Lesa meira.