Á hótel Eddu Stórutjörnum eru alls 41 herbergi og þar af eru 20 Eddu PLÚS herbergi og 21 herbergi með handlaug. Þá eru svefnpokapláss einnig í boði.
Gestrisni af gamla skólanum síðan 1961
Frá heimavist til hótels
Saga Edduhótelanna er nánast samofin sögu ferðaþjónustu á Íslandi. Með almennum flugsamgöngum til landsins og bættum efnahag jókst þörfin á þjónustu við ferðafólk hringinn í kring um landið. Við Íslendingar erum vön að bjarga okkur og nýta þá möguleika sem standa til boða. Í þeim anda fæddist sú hugmynd að nýta heimavistarskólana á landsbyggðinni sem hótel yfir sumarmánuðina þegar þeir stóðu auðir. Lesa meira.